Lögin heimila sveitarfélögum að stofna og reka neyslurými þar sem einstaklingar 18 ára og eldri geta neytt fíkniefna undir eftirliti starfsfólks. Embætti landlæknis veitir leyfi fyrir rekstrinum og heilbrigðisráðherra setur reglugerð um þjónustu, öryggi, starfsfólk og eftirlit. Sveitarfélag og lögregla geta gert samkomulag um að lögregla grípi ekki til aðgerða gegn notendum á tilteknu svæði í kringum neyslurýmið. Markmið laganna er að skapa öruggt umhverfi þar sem gætt er hreinlætis og sýkingavarna fyrir langt leidda einstaklinga.
The law allows municipalities to establish and operate consumption rooms where individuals 18 years and older can use drugs under staff supervision. The Directorate of Health grants permits for operation and the Minister of Health sets regulations on services, safety, staff, and oversight. Municipalities and police can agree that police will not take action against users in a specified area around the consumption room. The aim is to create a safe environment with hygiene and infection control for severely addicted individuals.