Lögin einfalda umsóknarferli um atvinnuleysisbætur með því að fella niður skyldu til að leggja fram vottorð frá fyrrverandi vinnuveitanda. Þess í stað tilgreina umsækjendur sjálfir upplýsingar um starfstíma, starfshlutfall og ástæður atvinnuleysis, en Vinnumálastofnun getur þá óskað eftir vottorði ef þurfa þykir. Lögin hafa einnig að geyma ýmsar smærri breytingar, meðal annars um viðurlög fyrir þá sem láta hjá líða að tilkynna um vinnu samhliða atvinnuleysisbótum og breytingar á skilyrðum vegna skráðs lögheimilis. Lögin snerta alla launamenn sem sækja um atvinnuleysisbætur og gera ferlið skilvirkara.
This law simplifies the unemployment benefit application process by removing the requirement to submit a certificate from a former employer. Instead, applicants themselves provide information about their employment period, work percentage, and reasons for unemployment, and the Directorate of Labour can request employer verification if needed. The law also includes various minor amendments, including penalties for those who fail to report work while receiving unemployment benefits and changes to requirements regarding registered domicile. The law affects all employees applying for unemployment benefits and makes the process more efficient.