Lögin setja reglur um áhafnir á öllum íslenskum skipum og einnig erlendum skipum sem starfa á íslensku innsævi í 30 daga samfellt eða 90 daga á ári. Þau kveða á um kröfur um menntun, þjálfun, skírteini, aldur, heilbrigði og starfsreynslu þeirra sem starfa um borð í skipum til að tryggja öryggi áhafna, farþega og skipa. Lögin fjalla einnig um lágmarksmönnun skipa, vaktstöður, vinnu- og hvíldartíma, vinnuskilyrði og öryggisstjórnunarkerfi. Markmið laganna er að efla fagmennsku sjómanna og varnir gegn mengun sjávar og stuðla að jöfnu aðgengi kynjanna að störfum um borð.
This law establishes rules for crews on all Icelandic ships and also foreign ships operating in Icelandic waters for 30 consecutive days or 90 days per year. It sets requirements for education, training, certificates, age, health, and experience of those working aboard ships to ensure the safety of crews, passengers, and vessels. The law also covers minimum manning requirements, watch duties, working and rest hours, working conditions, and safety management systems. Its aim is to enhance seafarer professionalism and protection against marine pollution, and to promote equal access for all genders to maritime education and employment.