Lögin innleiða nýjar EES-reglur um öryggi og vinnuskilyrði ökumanna sem flytja farþega og vörur í atvinnuskyni. Flutningsaðilar verða skyldir til að skipuleggja vinnu ökumanna í samræmi við reglur um aksturs- og hvíldartíma og greiða kostnað vegna gistingar ökumanna utan ökutækis. Einnig eru settar skýrari reglur um gildissvið erlendra ökuskírteina á Íslandi og heimildir Eftirlitsstofnunar EFTA til að leggja sektir á framleiðendur ökutækja sem brjóta í bága við skýrsluskyldu eða öryggiskröfur. Lögin fela jafnframt í sér innleiðingu á EES-reglum um losun koltvísýrings frá þungum ökutækjum og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum.
This law implements new EEA regulations on safety and working conditions for commercial drivers transporting passengers and goods. Transport companies must organize driver work schedules according to driving and rest time rules and cover accommodation costs for drivers staying outside their vehicles. The law also clarifies rules for foreign driving licenses valid in Iceland and grants the EFTA Surveillance Authority power to fine vehicle manufacturers that violate reporting requirements or safety standards. Additionally, it incorporates EEA regulations on carbon dioxide emissions from heavy vehicles and market surveillance of motor vehicles.