Lögin gera fólki sem hefur orðið að yfirgefa heimili sitt vegna náttúruhamfara, bruna eða yfirvofandi hættu kleift að skrá tímabundið aðsetur þar til húsnæðið er íbúðarhæft aftur. Þau heimila einnig fólki sem skráð er án heimilisfangs að skrá sérstakt aðsetur í atvinnuhúsnæði í eitt ár í senn. Eigendur fasteigna fá heimild til að ákveða og tilkynna Þjóðskrá hversu margir megi vera skráðir á eign þeirra, en geta ekki neytt þessa til að reka fólk út. Lögin setja einnig stjórnvaldssektir á þá sem byggja án leyfis eða taka mannvirki í notkun án öryggisúttektar.
The law allows people who have been forced to leave their homes due to natural disasters, fires, or imminent danger to register a temporary address until their housing becomes habitable again. It also permits people registered without a specified address to register a special address in commercial premises for renewable one-year periods. Property owners gain the right to decide and notify the National Registry of how many individuals may be registered at their property, but cannot use this to evict already registered residents. The law also introduces administrative fines for those who build without permits or put structures into use without safety inspections.