Lögin hækka hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði úr 600.000 kr. á mánuði í 900.000 kr. á mánuði fyrir foreldra í fæðingarorlofi. Hækkunin fer fram í áföngum: 700.000 kr. fyrir börn fædd á tímabilinu apríl-desember 2024, 800.000 kr. fyrir börn fædd árið 2025, og síðan 900.000 kr. fyrir börn fædd árið 2026 og síðar. Sömu hámarksfjárhæðir gilda fyrir foreldra í sorgarleyfi vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts. Lögin taka mið af sameiginlegum aðgerðum ríkisstjórnar og sveitarfélaga til stuðnings kjarasamningum á vinnumarkaði.
The law raises the maximum monthly payments from the Maternity/Paternity Leave Fund from 600,000 ISK to 900,000 ISK for parents on parental leave. The increase is phased in: 700,000 ISK for children born April-December 2024, 800,000 ISK for children born in 2025, and 900,000 ISK for children born in 2026 and later. The same maximum amounts apply to parents on bereavement leave due to infant loss, stillbirth, or miscarriage. The law was enacted to support collective wage negotiations between the government and municipalities.