Lögin gera breytingar á lögum um útlendinga og fjalla um afturköllun alþjóðlegrar verndar. Nú er heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur er talinn hættulegur öryggi ríkisins, hefur hlotið dóm fyrir alvarlegt afbrot og er hættulegur samfélaginu, eða hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu. Þegar alþjóðleg vernd er afturkölluð fellur dvalarleyfi og atvinnuleyfi úr gildi, en heimilt er að veita tímabundið dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar með sérstökum skilyrðum. Einnig er heimilt að halda upplýsingum leyndum frá aðila ef það telst nauðsynlegt vegna þjóðaröryggis eða annarra sérstakra ástæðna.
This law amends Iceland's immigration law regarding the revocation of international protection. It allows authorities to revoke international protection if a foreign national is deemed dangerous to national security, has been convicted of a serious crime and poses a danger to society, or has been convicted of repeated offenses threatening public order or safety. When international protection is revoked, residence and work permits become invalid, but temporary residence permits may be granted for tolerated stay with special conditions. The law also allows authorities to withhold information from parties in cases where it is deemed necessary for national security or other special reasons.