Lögin gera fólki sem bjó í Grindavík 9. nóvember 2023 en hefur flutt lögheimili sitt til annarra sveitarfélaga kleift að sækja um að kjósa í sveitarstjórnarkosningum í Grindavík árið 2026, þó það búi ekki lengur þar. Þeir sem kjósa í Grindavík geta einnig boðið sig fram og setið í sveitarstjórn þrátt fyrir að eiga lögheimili annars staðar. Ef bannað er að vera í Grindavík á kjördag skal kosningarstaður vera utan sveitarfélagsmarka. Lögin taka mið af þeirri sérstöku stöðu sem skapast hefur í Grindavík vegna náttúruhamfara og brottflutnings íbúa.
The law allows people who lived in Grindavík on November 9, 2023 but have since moved their legal residence to other municipalities to apply to vote in Grindavík's 2026 municipal elections, even though they no longer live there. Those who vote in Grindavík can also run for office and serve on the municipal council regardless of where they have their legal residence. If presence in Grindavík is prohibited on election day, the polling place shall be located outside the municipality's boundaries. The law addresses the special circumstances in Grindavík due to natural disasters and resident evacuation.