Lög um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila

Act on accessibility of websites and mobile applications of public entities

Samþykkt 2026-03-05 · fjármála- og efnahagsráðherra
technology accessibility digital public-sector

Markmið, gildissvið og orðskýringar

1. gr. Markmið

Markmið laga þessara er að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.

Ensure websites and mobile apps of public entities are accessible to all, especially disabled persons, by making them perceivable, operable, understandable and robust.

2. gr. Gildissvið

Lög þessi gilda um vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila. Lögin gilda ekki um: 1. Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum útvarpsrekenda í almannaþágu. 2. Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka nema þau veiti þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks.

Applies to websites and mobile apps of public entities. Exceptions: public service broadcasters; NGOs unless they provide essential public services or services for disabled persons.

3. gr. Orðskýringar

Í lögum þessum hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem hér segir: 1. Opinber aðili: Ríki, sveitarfélög, stofnanir þeirra og samtök og aðrir opinberir aðilar. 2. Smáforrit fyrir fartæki: Notkunarhugbúnaður sem er hannaður og þróaður af eða fyrir hönd opinberra aðila, til notkunar fyrir almenning á fartækjum eins og snjallsímum eða spjaldtölvum. 3. Vöktunaraðili: Sá aðili sem ráðherra felur með reglugerð að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar samkvæmt lögum þessum.

Defines: Public entity (state, municipalities, their institutions). Mobile application (software designed by/for public entities for public use on smartphones/tablets). Monitoring body (entity designated by minister for technical oversight).

Kröfur og skyldur

4. gr. Aðgengiskröfur

Opinberir aðilar skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera vefsetur sín og smáforrit fyrir fartæki aðgengileg með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.

Public entities must take necessary measures to make their websites and mobile apps perceivable, operable, understandable and robust.

5. gr. Óhófleg byrði

Opinberir aðilar skulu uppfylla aðgengiskröfur skv. 4. gr. að því marki sem þær verða þeim ekki óhófleg byrði. Við mat á því hvort um óhóflega byrði sé að ræða skv. 1. mgr. skal tekið tillit til stærðar, bolmagns og eðlis viðkomandi opinbers aðila, ásamt áætluðum kostnaði og ávinningi fyrir aðilann í tengslum við áætlaðan ávinning fyrir fatlað fólk.

Compliance required unless disproportionate burden. Assessment considers size, resources, nature of entity, estimated cost vs. benefit for disabled persons.

6. gr. Aðgengisyfirlýsing og endurgjöf

Opinberir aðilar skulu birta og uppfæra reglulega yfirlýsingu um aðgengi á vefsetrum sínum og í smáforritum fyrir fartæki. Opinberir aðilar skulu koma á fót aðgengilegri leið fyrir notendur til að veita endurgjöf, tilkynna um vanefndir á aðgengiskröfum og biðja um upplýsingar sem eru undanskildar.

Public entities must publish and regularly update accessibility statements. Must provide an accessible feedback mechanism for users to report non-compliance.

Eftirlit og framfylgd

7. gr. Reglubundið eftirlit og skýrslugjöf

Vöktunaraðili skal árlega gera úttekt á úrtaki vefsetra og smáforrita opinberra aðila. Niðurstöður hverrar úttektar skulu birtar opinberlega. Vöktunaraðili skal á þriggja ára fresti taka saman skýrslu um niðurstöður eftirlits og skila til Eftirlitsstofnunar EFTA. Vöktunaraðili skal, til að styðja við framkvæmd laga þessara, gefa út almennar leiðbeiningar um framkvæmd tæknilegra krafna, útbúa og birta fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu skv. 6. gr. og stuðla að þjálfun og vitundarvakningu um stafræn…

Monitoring body conducts annual audits of sample websites/apps, publishes results, reports to EFTA Surveillance Authority every 3 years, issues guidelines, and promotes digital accessibility awareness.

8. gr. Kvartanir og úrbætur

Hver sá sem telur að opinber aðili uppfylli ekki kröfur laga þessara getur beint ábendingu til viðkomandi aðila. Ef ekki er brugðist við ábendingu skv. 1. mgr. á fullnægjandi hátt innan hæfilegs frests er unnt að beina formlegri kvörtun til þess stjórnvalds sem fer með kærumál samkvæmt lögum þessum. Stjórnvaldið getur beint bindandi fyrirmælum til opinbers aðila um að gera úrbætur innan hæfilegs frests.

Anyone can raise concerns with a public entity. If unresolved, formal complaint to designated authority, which can issue binding remediation orders.

9. gr. Dagsektir

Sinni opinber aðili ekki fyrirmælum stjórnvalds skv. 8. gr. innan tilsetts frests getur stjórnvaldið lagt dagsektir á viðkomandi aðila. Dagsektir renna í ríkissjóð og falla niður þegar úrbætur hafa verið gerðar að mati stjórnvalds.

Non-compliance with remediation orders can result in daily fines payable to the treasury, lifted once remediation is confirmed.

Gildistaka o.fl.

10. gr. Innleiðing

Lög þessi eru sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102 frá 26. október 2016 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 frá 5. febrúar 2021.

Transposes EU Directive 2016/2102 on accessibility of public sector websites and mobile apps, incorporated into EEA Agreement by Joint Committee Decision 59/2021.

11. gr. Reglugerðarheimild

Ráðherra er heimilt í reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.

Minister may issue detailed regulations covering: scope exceptions, technical standards, disproportionate burden process, accessibility statement format, monitoring methodology, complaints procedure, awareness measures, and daily fine amounts.

12. gr. Gildistaka

Lög þessi öðlast þegar gildi. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. koma ákvæði 4.–9. gr. til framkvæmda sem hér segir: 1. 1. janúar 2027 fyrir vefsetur opinberra aðila sem voru fyrst gerð almenningi aðgengileg eftir 1. janúar 2015. 2. 1. júlí 2027 fyrir önnur vefsetur opinberra aðila. 3. 1. janúar 2028 fyrir smáforrit opinberra aðila fyrir fartæki.

Enters into force immediately. Substantive requirements (articles 4-9) phased: Jan 1, 2027 for websites published after Jan 1, 2015; Jul 1, 2027 for other websites; Jan 1, 2028 for mobile apps.

📄 Sjá á Althingi.is →

Opna í gagnvirkum viðmóti →