Sjálfstæðisflokkur
Vilhjálmur Árnason, fæddur á Sauðárkróki árið 1983, er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi og hefur setið á þingi síðan 2013. Hann er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfaði sem lögreglumaður hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum áður en hann tók sæti á Alþingi. Vilhjálmur hefur einbeitt sér sérstaklega að málefnum löggæslunnar, umhverfis- og náttúruverndarmálum og hefur verið leiðandi í umræðu um þjóðgarðamál á Íslandi. Á þingi hefur Vilhjálmur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum og setið í margvíslegum nefndum og starfshópum. Hann hefur leitt vinnu við endurskoðun á lögreglunámi og útdeilingu viðbótarfjármagns til lögreglunnar og setið í starfshópum um gerð löggæsluáætlunar og samgönguáætlunar. Hann hefur setið í Þingvallanefnd frá árinu 2017, þar sem hann gegndi formennsku fyrsta árið og hefur síðan verið varaformaður til ársins 2022. Vilhjálmur situr einnig í nefnd um stofnun Miðhálendisþjóðgarðs og í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs. Vilhjálmur er sonur Árna Egilssonar skrifstofustjóra og bróðursonur Vilhjálms Egilssonar fyrrverandi alþingismanns. Hann er giftur Sigurlaugu Pétursdóttur snyrtifræðingi og eiga þau þrjá syni saman. Vilhjálmur hefur verið virkur í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins og var formaður Víkings, félags ungra Sjálfstæðismanna í Skagafirði, og Freyju, félags ungra Sjálfstæðismanna í Grindavík.
Vilhjálmur Árnason, born in Sauðárkrókur in 1983, is a member of parliament for the Independence Party representing the Southern Constituency and has served in parliament since 2013. He holds a master's degree in law from Reykjavík University and worked as a police officer with the Metropolitan Police and the Reykjanes Police before taking his seat in parliament. Vilhjálmur has focused particularly on law enforcement issues, environmental and nature conservation matters, and has been a leading voice in the debate on national park issues in Iceland. In parliament, Vilhjálmur has held numerous positions of trust and served on various committees and working groups. He has led work on the review of police education and the allocation of additional funding to the police, and has served on working groups on law enforcement planning and transport planning. He has been a member of the Þingvellir Committee since 2017, where he served as chairman the first year and has since been vice-chairman until 2022. Vilhjálmur also serves on the committee on the establishment of the Highlands National Park and on the board of Vatnajökull National Park. Vilhjálmur is the son of Árni Egilsson, an office director, and nephew of former MP Vilhjálmur Egilsson. He is married to Sigurlaug Pétursdóttir, a beautician, and together they have three sons. Vilhjálmur has been active in the youth wing of the Independence Party and served as chairman of Víkingur, the association of young Independence Party members in Skagafjörður, and Freyja, the association of young Independence Party members in Grindavík.