Píratar
Lenya Rún Taha Karim er íslensk stjórnmálakona, fædd 18. desember 1999 í Kópavogi. Hún er dóttir kúrdískra innflytjenda sem komu til Íslands á tíunda áratug síðustu aldar, faðir hennar árið 1993 og móðir árið 1996. Lenya Rún hefur verið virk í baráttumálum Pírata og hefur verið varaþingmaður flokksins á Alþingi. Í Alþingiskosningum 2021 vakti Lenya Rún mikla athygli þegar samkvæmt fyrstu lokatölum náði hún kjöri sem jöfnunarmaður í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hefði sú niðurstaða staðist hefði hún orðið yngsti þingmaður í sögu Alþingis, aðeins 22 dögum yngri en Jóhanna María Sigmundsdóttir. Hins vegar urðu miklar sviptingar á úthlutun jöfnunarmanna eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi daginn eftir kosningarnar og missti Lenya þingsætið ásamt fjórum öðrum frambjóðendum. Þrátt fyrir þetta sat hún á Alþingi sem varaþingmaður ellefu sinnum á árunum 2021 til 2024, fyrst þann 27. desember 2021 þegar hún tók sæti fyrir Andrés Inga Jónsson. Lenya Rún hefur verið áberandi talsmaður fyrir réttindum hælisleitenda, afglæpavæðingu vímuefna og lausnum á loftslagsvandanum. Hún hefur verið einn af yngstu og sýnilegustu talsmönnum sinnar kynslóðar í íslenskum stjórnmálum.
Lenya Rún Taha Karim is an Icelandic politician born on 18 December 1999 in Kópavogur. She is the daughter of Kurdish immigrants who came to Iceland in the 1990s, her father in 1993 and her mother in 1996. Lenya Rún has been active in the Pirate Party's causes and has served as a deputy member of parliament for the party in Alþingi. In the 2021 parliamentary elections, Lenya Rún attracted considerable attention when, according to the initial final count, she won a seat as a leveling seat member for the Reykjavík North constituency. Had that result stood, she would have become the youngest parliamentarian in the history of Alþingi, just 22 days younger than Jóhanna María Sigmundsdóttir. However, following a recount in the Northwest constituency the day after the election, five leveling seats were reshuffled, and Lenya lost her seat along with four other candidates. Despite this, she sat in Alþingi as a deputy member eleven times between 2021 and 2024, first on 27 December 2021 when she temporarily replaced Andrés Ingi Jónsson. Lenya Rún has been a prominent advocate for the rights of asylum seekers, the legalization of drugs, and solutions to the climate crisis. She has been one of the youngest and most visible spokespersons of her generation in Icelandic politics.